Hvenær verður Gunnar tekinn?

Sá þessa frétt í Mogga. Sjálfsagt hafa þessir delinkventar valdið milljónatjóni. Og vonandi verða þeir látnir borga. En er nokkuð búið að handtaka Gunnar Birgisson út af skemmdunum á Heiðmörk?

mbl.is Þrír í haldi grunaðir um skemmdarverk í Hafnarfirði í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Menn sem sitja beggja vegna borðs sleppa nú yfirleitt með skrekkinn, eiga auðvelt með að breiða yfir glæpinn.

Ester Sveinbjarnardóttir, 14.2.2007 kl. 16:50

2 Smámynd: Herbert Guðmundsson

Var Gunnar Birgisson að fikta í Heiðmörkinni? Voru það ekki starfsmenn bæjarins eða starfsmenn verktaka á vegum bæjarins? Og var það yfirleitt óvænt fikt? - Þetta eru tæplega sambærileg dæmi sem þú nefnir, á nokkurn hátt ...

Herbert Guðmundsson, 14.2.2007 kl. 21:13

3 Smámynd: Sigurður G. Tómasson

Hvorum megin fórst þú fram úr í dag Herbert! Það skyldi þó ekki hafa verið hægra megin.

Sigurður G. Tómasson, 14.2.2007 kl. 23:19

4 identicon

Dæmin eru sambærileg, nema hvað bæjarstjórinn í Kópavogi og eigandi verktakafyrirtækisins Klæðningar ehf (=sami maður) ætti að vita betur og ætti að hafa náð meiri siðferðisþroska en hinir þrír 15-17 ára gömlu óknyttapiltar og skemmdarvargar úr Hafnarfirði.

Maðurinn sat auk þess nógu lengi á löggjafarþingi Íslendinga og hefur það langa starfsreynslu í verktakabransanum til að honum ætti að vera fyllilega kunnugt um þau lög sem honum ber að fylgja áður en hann sigar rökkum sínum til illvirkja á vatnsverndarsvæðum, friðlöndum og útivistarsvæðum nágrannasveitarfélaga. 

Meðal laga sem hann hefur brotið í Heiðmörk eru skipulags- og byggingarlög, náttúruverndarlög, lög um mat á umhverfisáhrifum og skógræktarlög. Og burtséð frá öllum lagaklásúlum er til nokkuð sem heitir dómgreind og siðferðiskennd sem gera verður lágmarkskröfur um hjá öllum borgurum, ekki síst hjá vel-menntuðum, einráðum smákóngi í Kópavogsborg.

Gapripill (IP-tala skráð) 15.2.2007 kl. 22:47

5 identicon

Gapripill (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 05:10

6 identicon

Sigurður, segðu mér hvað eru „delinkventar“ ?

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 07:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

einherji

Höfundur

Sigurður G. Tómasson
Sigurður G. Tómasson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...urgtomasson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 45715

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband