Hann er greinilega ekki í lagi

Ég hélt satt að segja að Gunnar Birgisson mundi taka feginshendi fresti Skógræktarfélagsins á því að kæra út af spjöllunum á Heiðmörk. Nei ónei, hann steytir hnefann á móti Vilhjálmi, sem þó bað honum griða og fékk. Honum er ekki við bjargandi. Það kann að vera, að einhver fljótaskrift hafi verið á samningi Reykjavíkur við Kópavog. En það breytir ekki því að bæjarstjóra hlýtur að vera kunnugt um reglur og lög um skipulag og framkvæmdir. Eiga Kópavogsbúar kannski að taka bæjarstjórann á orðinu, byggja fyrst það sem þá langar og sækja svo um byggingarleyfi til bæjarins. Þeir gætu svo sagt: "Hann Eddi sem seldi mér húsið átti að skaffa leyfið!"
mbl.is Kópavogsbær kann að leita réttar síns í Heiðmerkurdeilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Mér finnst það bara tímaspursmál hvenær "hegðun" Gunnars verður búinn að elta hann uppi og afhjúpa. Ekki orð um það meir!

Haukur Nikulásson, 26.2.2007 kl. 23:20

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þið þreytist ekki á að gera ykkur mat úr þessu klúðri. Þetta er orðið ofsoðið og bragðlaust.

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.2.2007 kl. 17:47

3 Smámynd: Sigurður G. Tómasson

Eki er ég kokkurinn. Gunnar Birgisson hélt blaðamannafund í gær og hótaði öllum. Og svo er ég ekkert sérstaklega svangur. En þetta mál fjallar um grundvallaratriði.

Sigurður G. Tómasson, 27.2.2007 kl. 17:56

4 identicon

Satt segir Sigurður G. Tómasson. Bæjarstjóranum sést ekki fyrir og hefur verið sinn eigin versti óvinur frá upphafi þessa máls. Hann virðist vera manna duglegastur við að rogast með hrís í sitt eigið bál.

Hafi það verið ætlun hans að efna til fréttamannafundarins í fyrradag í því augnamiði að rétta hlut sinn gagnvart almenningsálitinu eftir neikvæða fjölmiðlaumfjöllun síðustu vikna, hefur það illilega brugðist. Á fundinum réttlætti hann eigin lögbrot (nýleg og löngu liðin) og hótaði lögsókn á hendur brotaþolanum, Skógræktarfélagi Reykjavíkur, fyrir "meiðyrði" framkvæmdastjóra þess. Hvaða meiðyrði? Felst "meiðyrðið" í því að segja frá því að hundruð trjáa hafi verið numin á brott, án leyfis eiganda, og hluta þeirra komið, með leynd, í geymslu á afviknum stað? Hvenær þjófkenndi framkvæmdastjórinn bæjarstjórann eða framkvæmdaaðilana?

Á fundinum fór bæjarstjórinn líka með augljósar lygar, þegar hann gerði tilraun til að gera fyrrum framkvæmdastjóra Skógræktarfélagsins samsekan sér í málinu. Áður hafa fjölmiðlar borið sömu ummæli bæjarstjórans undir fyrrum framkvæmdastjóra félagsins og var svar hins síðarnefnda: "Bull og vitleysa."

Í nágrannalöndum okkar hefði bæjarstjórinn verið neyddur til að segja af sér fyrir að bera slíkt ljúgvitni gegn náunga sínum. En íslenskir þungavigtarmenn í stjórnmálum eru greinilega til muna sveigjanlegri í siðferðisefnum og ósannsögli er enginn löstur í íslenskum stjórnmálum. 

Í dag rennur út sá vikufrestur sem Skógræktarfélag Reykjavíkur veitti borgarstjóranum, áður en kært yrði fyrir leyfislaus eignaspjöll (og hugsanlegan trjástuld) Kópavogsbæjar/Klæðningar ehf. Spennandi verður að fylgjast með hvort af þeirri kæru verður, eða hvort þetta félag verði aftur snúið niður af valdamönnum.

Morgunblaðið, þriðjudaginn 27. febrúar, 2007 - Innlendar fréttir

 

Gunnar kallar eftir framkvæmdaleyfi

Segir tjón vegna tafar á framkvæmdum yfirvofandi

GUNNAR I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, segir bæjarfélagið hafa beðið talsvert tjón af þeirri töf sem orðið hefur á framkvæmdum Kópavogsbæjar við vatnslögn í Heiðmörk og aðeins tímaspursmál hvenær tré sem eru í vörslu bæjarins og tekin voru upp vegna framkvæmdanna fari að drepast. Gunnar er afar óánægður með umfjöllun fjölmiðla um framkvæmdirnar í Heiðmörk og boðaði bæjarstjórn Kópavogs til blaðamannafundar í því augnamiði að koma sjónarmiðum bæjarins á framfæri. Gunnar segir þátt Skógræktarfélags Reykjavíkur að málinu með ólíkindum. Að hans sögn er upphaf málsins að rekja til þess að haft hafi verið samband við þáverandi framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur, Vigni Sigurðsson, árið 2003 og hann fenginn í vettvangsferð þar sem heppilegasta leið fyrirhugaðrar vatnslagnar hafi verið valin í samráði við hann. Í millitíðinni hafi hins vegar nýr framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins verið ráðinn og hann hafi farið með málið í fjölmiðla og haldið því fram að glæpur hafi verið framinn í Heiðmörk, án þess að þekkja forsögu málsins og án þess að hafa talað við starfsmenn Kópavogsbæjar. "Í kjölfarið erum við vændir um að vera þjófar sem steli trjám og selji sem svo fundust eftir mikla leit lögreglu," segir Gunnar. Hann segist óhræddur við að Skógræktarfélagið leggi fram kæru á hendur Kópavogsbæ, enda fái hann ekki séð á hverju málatilbúnaður félagsins yrði reistur. "Það eru kannski við sem ættum að kæra Skógræktarfélagið og það fyrir meiðyrði, þar sem þeir hafa sagt meira en þeir hafa getað staðið við," segir Gunnar.

Spurður um næstu skref í málinu segir Gunnar að hann hafi skrifað borgarstjóra Reykjavíkur bréf á föstudaginn og farið þess á leit við hann að framkvæmdaleyfi yrði gefið út tafarlaust þar sem tjón af völdum tafanna væri yfirvofandi. "Nú þarf framkvæmdaleyfið að koma einn, tveir og þrír, svo hægt sé að ljúka við lögnina," segir Gunnar. Verði áframhaldandi tafir á framkvæmdum ítrekar Gunnar þá afstöðu sína að Kópavogsbær muni höfða skaðabótamál á hendur Reykjavíkurborg þar sem borgin verði látin standa frammi fyrir því sem skrifað var undir í samkomulagi sveitarfélaganna frá 15. september 2006, en þar komi fram skýrum orðum að Reykjavíkurborg skuli veita framkvæmdaleyfi innan mánaðar frá því að beiðni þar að lútandi var lögð fram.

Í hnotskurn
» Bæjaryfirvöld í Kópavogi telja sig hafa borið skarðan hlut frá borði í fjölmiðlaumfjöllun um framkvæmdir bæjarins í Heiðmörk og efndu af því tilefni til blaðamannafundar í gær.
» Bíði Kópavogsbær frekara tjón vegna tafa við útgáfu framkvæmdaleyfis hyggjast bæjaryfirvöld höfða skaðabótamál á hendur Reykjavíkurborg vegna vanefnda á samkomulagi milli sveitarfélaganna.

Vésteinn (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 12:17

5 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég er Kópavogsbúi og skammast mín svo sannarlega fyrir Bæjarstjórann okkar!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 28.2.2007 kl. 16:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

einherji

Höfundur

Sigurður G. Tómasson
Sigurður G. Tómasson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...urgtomasson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 45688

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband