Hvað varðar hann um lög og rétt?

Í fréttum sjónvarpsins var sagt frá því að Gunnar Birgisson stæði í stórframkvæmdum á Kársnesi í trássi við skipulagslög. Hvernig er það, gilda ekki landslög í Kópavogi? Þarna er um að ræða 13-14 hektara uppfyllingar og viðlegukant vegna stórskipahafnar. Þá er það nú enn eitt. Hversu skynsamlegt er það að byggja stórskipahöfn á Kársnesi? Er ekki öllum leirum og grunnsævi við Álftanes og í Fossvogi stefnt í hættu með stórskipaumferð um grunnan og skerjum þakinn fjörð sem ber nafn með rentu? Hafa sveitarfélögin í nágrenninu, Álftanes, Garðabær og Reykjavík verið spurð álits. Og hvað finnst íbúum Kópavogs um að fá umferðaræðar til og frá stórskipahöfn í gegnum byggðina?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Ásbjörnsson

Ef þú vilt fá upplýsingar hjá einhverjum sem veit hvernig er háttað með skipulags- og byggingarlög og framkvæmdaleyfi.  Þá freistast maður til að ætla að sá sem hefur rekið verktakafyrirtæki í áratugi, setið á Alþingi þegar lögin voru sett og er sveitarstjóri í næst stærsta sveitarfélagi landsins, kynni leikreglurnar.  Ekki satt?  Eða væri slíkt kjaftæði kannski merki um umræðustjórnmál en ekki þann athafnamann sem Gunnar kynnir sig?

Sigurður Ásbjörnsson, 22.3.2007 kl. 21:16

2 identicon

Ég ætla nú bara að vera svo stórorð að leyfa mér að segja að framganga Gunnars Birgissonar annars vegar í Heiðmerkurmálinu og nú þessu landfyllingarmáli finnst mér mest hafa einkennst af valdhroka. Í flestum þeim viðtölum sem ég hef heyrt við manninn hefur hann eytt mestu púðrinu í að gera lítið úr og tala niður til þeirra sem hafa leyft sér að hafa skoðun á ákvörðunum hans. Mér finnst slík framkoma illa hæfa manni í hans stöðu.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 23.3.2007 kl. 23:13

3 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Af hveju færðu ekki karlinn í viðtal við þig í útvarp Sögu?

Hlynur Jón Michelsen, 29.3.2007 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

einherji

Höfundur

Sigurður G. Tómasson
Sigurður G. Tómasson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...urgtomasson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 45713

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband